Ég er ...

  • Nafn: Elmar Björgvin Skúlason
  • Staður: Ísafjörður
  • Atvinna: Þjónustufulltrúi
  • Hjúskaparstaða: á föstu
  • Um mig: Er 22 ára, bý með Lindu Pé og Rebekku litlu, bróðir Arnór Gísla og Margrétar, sonur Siggu og Skúla og er tengdarsonur Ísafjarðar :P

Auglýsing

Coming soon !!

09. maí 2007 klukkan 17:53
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Svalur Blogg frá Reykjavíkurferðinni

Svalur  Nýjar myndir 

Svalur  Ný könnun

--------------------------------------------------------------------------------------------


Sé að nokkrir eru orðnir óþolinmóðir eftir bloggi frá mér en lofa allavega fyrir næstu helgi að það verður komið blogg og ný könnun jafnvel. Er núna að setja inn myndir á myndasíðuna mína fyrir þá sem vilja skoða ..... !



  LpEs

                              www.barnanet.is/elmar


--------------------------------------------------------------------------------------------


Sumarið að koma aftur

18. apríl 2007 klukkan 15:17
Lítið að frétta hérna á Ísafirði nema það að ég er að skipta um vinnu. Er ekki alveg að fíla 3x. Hanga í litlu herbergi alla daginn og þrífa stálplötur er ekki fyrir mig. Er meira "útum allt gaur" svona keyra um bæinn eða í fjölbreytilegu starfi en þetta var bara alltof einhæft fyrir mig.
Þannig að ég er að fara byrja að vinna hjá MS í maí og verð meðal annars að fylla á ís í verslunum og svo á að taka MS húsið í gegn þannig að maður verður allavega útivinnandi í sumar sem er frábært því ég fíla það betur en að hanga inni í litlu herbergi.


                                          3X Ms



Ég er loksins byrjaður í boltanum aftur eftir nokkra ára hlé. Nýjasta liðið mitt er hérna frá Ísafirði og heitir BÍ/Bolungarvík og lýst mér bara rosalega vel á þetta lið og hlakka mikið til að fara æfa á fullu aftur í sumar og komast í mitt gamla form. 
Konni !!!? Það er alltaf pláss fyrir stjörnuleikmann eins og þig ef þú hefur áhuga. Held að liðið færi ósigrandi í gegnum 3 deildina með okkur á sitthvorum kantinum. Össssssh :P

                                                    bí
                völlur


Verður líka mjög gott sumar hjá okkur hlíðarfjölskyldu. Ætlum að reyna ferðast eins mikið og við getum, fara í golf, njóta þess að vera saman í sumar og taka nóg af myndum með nýju myndavélinni okkar sem ég gaf okkur í hálfsárs gjöf <3
Talandi um að gera eitthvað í sumar að þá er brúðkaup í vændum. Gylfi og Sóley ætla loksins að gifta sig og verður það Jónsmessuhelgina 22-24. júní og þá er allt gengið að koma vestur til að fagna þessum stóra degi þeirra
.
Jæja, komið nóg af bloggi í dag en ég var að setja inn nýjar myndir frá Kanarí og smá í apríl þannig að kikjið endilega á þær og skrifið í gestó og svo er ný könnun líka hérna hægra megin fyrir ykkur sem vilja kjósa.

Kommenta svo !!!



Konna til Ísafjarðar !!!

29. mars 2007 klukkan 17:30
Heyrst hefur að gamla afmælisbarnið hann Konni (Hákon) Óskarsson sé að pæla í að kikja á "aldrei fór ég suður " en er samt ekki nógu sannfærður um að komaFýldur Endilega hvetjið hann að koma vestur og sýna honum hvernig eigi að djamma að alvöru hérna á Ísafirði. 
Heyrst hefur líka að hann sé á lausu og sé að leita, þannig að stelpur sem eru að leita..... ekki láta Hákon framhjá ykkur faraKoss           


    two pussies
! TWO PUSSIES !



                        

This is my new home in my new town :P

29. mars 2007 klukkan 16:11

                         
                               is-rv

Allt gott að frétta hér á Ísafirði og er bara að fíla þessa fyrstu daga sem Ísfirðingur í botn. Er reyndar ekki byrjaður að vinna ennþá en ég byrja hja 3x stál á mánudaginn þannig að vikan er aðalega búinn að vera aðlagast bænum og koma mér fyrir á Hlíðarvegi 7.
Páskarnir eru bara rétt ókomnir og þá verður nóg að gera hérna en þá er hátíðin "aldrei fór ég suður " og koma þá fullt af hljómsveitum til að spila og skemmta fólki. Litli brósi ætlar líka að heimsækja mig um páskana.... Hlæjandi og gistir hann hjá frænda sínum Veturliða og verður örugglega nóg að gera hjá þeim frændum þegar þeir hittast :) Ég ætla svo bara að nýta tækifærið og halda " influtningspartý " í næstu viku en þá er fullt af fólki að koma í bæinn og verður gaman að fá þau sem þekkja mig í heimsókn og skála fyrir flutningnum mínum UllandiSvalurHlæjandi 
Fyrsta helgin sem Ísfirðingur er að nálgast og ætlum við kannski bara að taka því rólega.... svona til að hlaða batteríin fyrir næstu viku . Egill frændi er að koma núna um helgina í heimsókn og ætlar hann að gista hjá Gylfa og kikja á nýja heimilið mitt. Verð að taka hann á rúntinn svo um Ísafjörð og nágrenni fyrst maður er á bíl hérna Glottandi

                      
      Hlíðarvegur 7

          Blokkin okkar á Hlíðarvegi 7  


ísafjörður

Ísafjörður í morgun



3x

Nýja vinnan mín hjá 3x stál

Tengarsonur Ísafjarðar

27. mars 2007 klukkan 14:11


Jæja, núna er strákurinn loksins fluttur til Ísafjarðar og ekki lengur borgarbarn... Gráta  Svoltið sorglegt en gaman að prófa eitthvað nýtt því núna fær maður alltaf að vera með Lindu sinni


                                             ísafjörður


Ísafjörður tekur vel á móti manni.... Fengum frábært ferðarveður leiðinni vestur og í gær var sól og blíða.   Svalur Þá var bara tekið því rólega á nýja heimili mínu á meðan konan var í vinnunni. Náði svo í Rebekku á leikskólann um tvö leytið sem minnir mig á að ég þarf að fara að ná í litlu núna Hlæjandi



BRB.........



Jæja, :)  búinn að ná í Rebekku litlu og erum núna að drekka kakómalt og horfa á Aladín þangað til við förum að ná í Lindu klukkan fjögur. Rosa gott að vera á sínum eigin bíl hérna á Ísafirði og veit að Gerða systir hennar LP og Rebekka tengdó eru ánægðar með að þurfa ekki að skutla okkur endalaust fram og til baka.

    passat



Svo vil ég óska Konna beibý til hamingju með afmælið :O Hann er 27 ára í dag og ef hann vill fá afmælisgjöf að þá verður hann að koma til Ísafjarðar um páskana. Bara rugl að fara norður svo varstu líka búinn að lofa að fara til Bulgaríu eða Ísafjarðar Glottandi 

                            kONNI


Var líka að setja inn nokkrar Kanarí myndir inn á myndasíðuna mína. Endilega kíkið á þær og kvittið í gestabókina :D


       

úff, nenni ekki að skrifa meira......






Undirskriftalisti !!!

21. mars 2007 klukkan 20:01

Eins og flestir vita að þá er strákurinn að fara flytja vestur um helgina og núna vil ég sjá hvort ég ætti að halda áfram e-h að blogga þannig að þeir sem skoða síðuna mína nuna og vilja sjá fleiri blogg frá mér og myndir að kommentið þá endilega nuna ... !! Langar að sjá hverjir skoða síðuna hjá mér 



        TAKK FYRIR

27. febrúar 2007

27. febrúar 2007 klukkan 00:15



          


           K A N A R Í E Y J A R
                      2 0 0 7

Í dag 27. febrúar klukkan 15:00 er ég og 12 manna fjölskylda hennar Lindu að fara til Kanaríeyja :) Þeir sem hafa áhuga að fylgjast með okkur að þá ætlar Linda að blogga eitthvað á blogginu sínu www.lindape.bloggar.is og setja inn myndir. Kíkið endilega inn og kommentið líka í leiðinni :P

Annars fyrir ykkur hin.........., ?!


                    hótelið

ströndin              vatnagsrður




                                

                                 Sjáumst eftir 2 vikur







Alriiiight !!!!!!

17. febrúar 2007 klukkan 15:05

Eftir mikla pressu frá fólki, þá sérstaklega frá fitubollu dvergnum þá hef ég ákveðið að láta undan og blogga smá fyrir ykkur :P

Ég fór til Ísafjarðar í seinustu viku að leita mér að vinnu. Sótti um á nokkrum stöðum. Sum fyrirtækin voru ekki að leita af fólki í bili en hin ætluðu að skoða málin. Það er allavega eitt fyrir fyrirtæki búið að bjóða mér starf hjá þeim og en ég er að bíða eftir svari frá öðrum áður en ég gef endanlegt svar. Lítur samt út fyrir að ég taki þetta starf og verð orðinn sveitastrákur í lok mars :D

Ég fór á þorrablót Grunnvíkinga síðasta laugardag með fjölskyldu Lindu. Þetta var rosalega skemmtilegt að upplifa svona þorrablót og var mikið borðað, dansað og skálað alveg til 3. Linda og Gerða voru i skemmtinefnd og stóðu sig bara ágætlega, nokkur góð og vel heppnuð atriði.

Á sunnudeginum var sofið út og svo um seinnipartinn var annað þorrablót haldið í Hafraholti 6 og var allt Kanarý gengið mætt og var aðeins rætt um væntanlegu ferð okkar 27.feb og skoðað gamlar myndir líka......... :D

Allir farnir að hlakka mikið til !!!

Þessi vika er bara búinn að vera fljót að líða og núna er fyrsta skiptið í langan tíma sem ég hef ekki neitt að gera um helgina.
Átti að vera fótboltamót og svo djamm um kvöldið með vinnunni en það voru svo mörg fyrirtæki sem vildu ekki borga 25 000 kr mótsgjald á þetta mót sem er líka skiljanlegt því mótshaldarnir eiga að sjá um kostnaðinn sjálfir eins og var gert áður en..... NEI !!!!  nísku DHL hraðsendlarnir telja sig bara hafa unnið bikarinn !!!
Íslandspóstur var eina fyrirtækið sem var búið að borga þannig að ég legg til að það verði bara hreinn úrslitaleikur um þennan bikar fyrst við höfum völl og bikar til að keppast um !

Fór í bíó í gær með Konna beibí á myndina "Hannibal rising". Þessi mynd er allt í lagi, fær mann eiginlega til að vorkenna núna Hannibal greyinu eftir að lenda í þessu þegar hann var lítill strákur og skilur hann vel afhverju hann gerðist geiðveik mannæta :P

Núna er bara 6 dagar í Lindu og Rebekku og 10 dagar í Kanarý :D:D styttist ærlega í þetta og verður þetta bara gaman. Ætla að njóta þess að vera á ströndinni og synda mikið og leika í sjónum..... nóg að gera :D

Vil svo benda á nýja myndasíðu hjá mér sem ég var að setja upp og endilega að kvitta í gestabókina þar

                           


                                    www.barnanet.is/elmar

Og ég bíð og bíð og bíð ..... !!!!

23. janúar 2007 klukkan 22:42

Er að verða svoltið pirraður á þessari endalausri bið hverja einustu viku . Það eru 15 dagar þangað til ég og Linda hittumst næst. Er er samt nýkominn frá henni, erum ekki búin að hittast í tvo daga en finnst samt  eins og vika sé liðinn. Þetta er líka án efa lengsti mánuður sem ég hef upplifað.
Get ekki beðið eftir því að flytja vestur og losna við þessa alla bið og bara geta verið saman að alvöru :) á samt örugglega eftir að sakna alveg fullt af fólki og borgarlífið.
 Nokkrir sem skilja ekkert í mér að vera fara vestur en hvað gerir maður ekki fyrir Lindu sína :P 

Vá, hvað íslenska landsliðið stóð sig vel í gær...... ég viðurkenni alveg að ég var búinn að afskrifa þá og ætlaði bara að fylgjast með öðru auganu en í stöðunni 5 - 0 þá settist ég niður í baunapokann minn og stóð ekki upp úr honum fyrr en í leikslok.
Yrði nú samt týpískt fyrir landliðið að geta ekki neitt í milli riðlinum eftir svona góða frammi stöðu en ein gella sagði mér að vera alltaf bjartsýnn og ætla mér að spá okkar mönnum allavega í 8 liða úrslit :)


 
Síðasta helgi var alveg rosalega fín en hún byrjaði snemma á föstudeginum þegar ég mætti í flug um tíu leytið og var að koma Lindu minni á óvart því hún vissi ekkert að ég væri á leiðinni þessa helgina  :) ég fékk bílinn hjá Gylfa og Sóley lánaðan og var að rúnta aðeins um bæinn..... þegar klukkan sló 12 hringdi ég í Lindu. Hún var þá nýfarin út með Tinnu og voru þær að fara að borða einhver staðar þannig að ég spurði saklaus hvort þær væri ekki á bíl..... Linda nátturulega segir nei þvi þær eiga ekki bíl..... þá spyr ég þær hvort þær vilji ekki bara fá far og kem fyrir hornið hjá BT versluninni sem þær voru að labba framhjá :D Linda alveg eitt spurningamerki í framan og hleypur inn í bíl að knúsa strákinn sinn......... :*

Um kvöldið var mér svo boðið í lítið þorrablót svona smá æfing fyrir 10. feb en þá er árlegt þorrablót hjá Grunnvíkingum og er alveg feikna stuð er mér sagt. Ég var "neyddur" til að smakka hákarl og átti ég að renna því með íslensku brennivíni og ekki bætti lyktin úr þessu sem var rosalega sterk  ......... hmmmmmmm ?! mæli sko ekkert með þessu  en foreldrar Lindu átu þetta eins og lítil börn með nammi, enda vestfirðingar í húð og hár...... !


Laugardagurinn var mjög góður. Byrjaði á sundferð með Lindu og Rebekku og svo um kvöldið var farið á lokahóf JC þar sem Linda var aðal manneskjan þetta kvöld aðsjálfsögðu :P hún var veislustjóri þetta kvöld og stóð sig með prýði og svo vann tvenn verðlaun líka en það var ræðuskörungur ársins og svo aðal verðlaunin sem var félagi ársins sem er mikil viðurkenning og mín alveg rosalega ánægð með þessi verðlaun og ég mjöööög stoltur kærasti :) Um tvö leytið var farið á Krúsina þar sem nokkur danspor voru tekinn á gólfinu og stóð mig bara vel en verð að segja að ein kona stóð sig lang best þarna en hún var örugglega e-h um sjötugt eða meira en hún var hoppandi og skoppandi eins og unglingar á tónleikum :)

Sunnudagurinn byrjaði ekki vel því ég átti pantað flug í hádeginu og eins og alltaf var erfitt að kveðja mæðgurnar og byrja að telja niður aftur :( en dagurinn bætist heldur betur því Arsenal - "Manstueftir Júnætit" var seinnipartinn. Ég og Arnór Gísli mættum bara óboðnir til KR ingana og Man Utd strákana í vesturbænum og horfðum á leikinn með þeim. Reyndar er Egill Arsenal maður þannig að við voru 3 Arsenal strákar á móti tveim Man Utd........!
Til þess að gera langa sögu stutta að þá sigraði Arsenal aðsjálfsögðu 2-1 þar sem Henry skoraði sigurmarkið á 93. mín ...........bara SWEEEEEET :D

 Jæja komið nóg í dag, nenni ekki að skrifa meira heldur




Allir að kommenta svo !!!!


BLESSS !!!!!

"Bermúda...... Kanarí ....... common pretty moma "

17. janúar 2007 klukkan 06:44

Þann 27. febrúar fer ég með Lindu minni og stórfjölskyldu hennar í eina stóra afmælisferð til Kanarí. Þrjár manneskjur eiga afmæli meðan við verðum þarna úti en það er pabbi hennar Lindu hann Pétur "Poolari" sem verður 50 ára þann 5. mars svo 10. mars er komið að  Rebekka"united " mömmu hennar Lindu  en hún er að verða 48 ára. Síðan er komið að aðal afmælisbarninu en Linda mín á þá 26 ára afmæli 13. mars, sama dag og við eigum flug heim á klakan þannig að afmælisdagurinn byrjar ekki vel hja henni..... !
En já ég var svona líka heppinn að fá að troða mér með í ferðina má segja þvi það var eiginlega allt fullt á hótelið sem þau gista á.... sem þið getið séð með því að klikka á þennan línk að neðan en allavega þá var það pabbi hennar Lindu sem hringdi í sumarferðir og fór að forvitnast hvort það væri mögleiki að fá mig með. Þá þurfti sumarferðir að hringja í hótelið og tjekka hvort það væri pláss fyrir einn í viðbót því þeir eru mjög strangir á hvern fjólda í íbúð en eftir mikla pælingar þá var hringt í pabba hennar og honum tilkynnt að það væri hægt að leyfa mér að koma með þannig að allir ánægðir og ég mjög þakklátur að fá að koma með þessum 12 manna hópi og er nánast farinn að pakka niður. Ekki nema 41 dagur í þetta líka :D

http://www.sumarferdir.is/kanari/gististadir/hotelinfo/129

Er búinn að fylgjast með þessari könnun sem ég setti inn fyrir viku og það virðist bara að þið viljið losna við mig úr borginni eða fá mig vestur því eins og staðan er í dag að þá er 67 % með að ég fari vestur sem fyrst en 33 % prósentin á móti því....!! En það lítur allt út fyrir að ég sé að fara flytja vestur til Lindu beib og Rebekku litlu því ég er allavega búinn að segja upp vinnuni en það er 3. mánaðar uppsagnarfrestur.. ég er að fara leita mér að vinnu á Ísafirði og verð bara kannski kominn í lok mars/byrjun apríl :P

Veit einhver annars um góða vinnu fyrir mig þarna ?! :P.
 
Hlakka allavega rosalega til að prófa þetta því ég hef aldrei búið úti á landi og verður þetta rosalegt stökk fyrir mig og líka að fara búa með uppáhalds skvísunum mínum, Lindu og Rebekku :) :)


Jæja, nenni ekki að skrifa meira í bili......... kommentið endilega !





Linda Pé

Jólin

Könnun

Á ég að halda áfram að blogga ?!

13.10.06

SlideShow











Klukkan

Leit